Leita Forsíða    Veftré    Hafa Samband
Minnsta leturgerð
Miðstærð letur
Stærsta gerð leturs
SMÞMFFL
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930123
45678910
Júní 2010

 

Sviðin

Starf sambandsins skiptist niður á 6 svið samkvæmt lögum þess. Þau starfa undir yfirstjórn og á ábyrgð framkvæmdastjórnar.

 

Rekstrarsvið sem annast daglegan rekstur sambandsins, útgáfu, samræmingu og eftirlit starfar á ábyrgð formanns og framkvæmdastjóra. Önnur svið starfa á ábyrgð félagslega kjörinna sviðstjóra og þeirra starfsmanna sem sérstaklega er falið að sinna þeim.

 

Flutninga- bygginga- og mannvirkjasvið, tekur m.a. til allra flutninga á landi, þ.m.t. hafnarverkamanna, bifreiða- og tækjastjóra, löndunar sjávarafla og allrar vinnu við byggingaframkvæmdir, þar með talin hverskonar jarðvinnu í því sambandi, hvort heldur er um að ræða húsabyggingar, virkjunarframkvæmdir eða aðra mannvirkjagerð. Tengsl við samgönguráðuneyti. Nefndarseta í landflutningaráði. Sviðstjóri er Már Guðnason, starfsmaður Fjóla Pétursdóttir.

 

Matvælasvið sem tekur m.a. til allra vinnu við úrvinnslu landbúnaðarafurða, sjávarafla og annarrar matvælaframleiðslu og menntamál í greininni. Tengsl við landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti, þ.m.t. nefndarstörf um fiskveiðistjórnun og um menntamál í fiskvinnslu. Stjórn Fiskifélags Íslands.  Sviðstjóri er Halldóra Sveinsdóttir, starfsmaður Skúli Thoroddsen

 

Iðnaðarsvið sem tekur m.a. til allrar vinnu við iðju og iðnað, annars en matvælaiðnaðar. Tengsl við iðnaðarráðuneyti. Menntun í iðnaði. Sviðstjóri er Sverrir Albertsson, starfsmaður Fjóla Pétursdóttir.

 

Þjónustusvið sem tekur m.a. til allrar vinnu við þjónustu þ.m.t. veitinga- gisti og greiðasölu. Tengsl við Samtök ferðaþjónustunnar og ráðuneyti ferðamála. Menntun í ferðaþjónustu. Sviðstjóri er Finnbogi Sveinbjörnsson, starfsmaður Skúli Thoroddsen.

 

Svið starfsmanna ríkis og sveitarfélaga sem tekur til allrar vinnu hjá ríki og sveitarfélögum þ.m.t. heilbrigðisþjónustunnar. Tengsl við Samninganefnd ríkisins og Launanefnd sveitarfélaga. Sviðstjóri er Signý Jóhannesdóttir, starfsmaður Fjóla Pétursdóttir.

 

Hlutverk hvers sviðs er að vera samráðs- og samvinnuvettvangur aðildarfélaga sambandsins um þau sameiginlegu mál sem hverri starfs- eða atvinnugrein tilheyra. Það á t.d. við um undirbúning kjarasamninga, aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum, mennta- og starfsþjálfunarmál.

 

 

Svið SGS starfa á landsvísu f.h. aðildafélaganna að sameiginlegum verkefnum hverrar starfsgreinar fyrir sig.